Karfan er tóm
Smartballs dou eru kúlur til þess að þjálfa grindarbotnsvöðvana. Hægt er að nota þær t.d. við dagleg störf, líkamsrækt eða í sturtu. Við fullnægingu herpast vöðvarnir í grindarbotninum saman, sterkari grindarbotn þýðir sterkari fullnæging. Þannig getur smartballs dou gert fullnæginguna þína kraftmikla og djúpa. Kúlunar geta einnig komið sér vel fyrir þær sem eru að jafna sig eftir barnsburð eða þær sem þjást af þvagleka. Kúlurnar hjálpa þér að einbeita þér að því að spenna og þjálfa upp réttu vöðvana. Smartballs eru hannaðar þannig að auðvelt er að setja þær upp í leggöngin, við mælum með að nota sleipiefni með þeim. Kúlurnar hreyfast inn í þér meðan þú hreyfist og minna þig þannig á að halda spennu. Kúlurnar eru alveg vatnsheldar og eru úr hágæða silíkoni. Það er einfalt að þrífa þær og við mælum með kynlífstækjasápu eða mildri sápu og volgu vatni.
Við mælum með dou fyrir byrjendur og lengra komna. Smartballs kemur í annarri útgáfu það er að segja smartballs uno sem við mælum með fyrir þær sem eru með leggöng í styttri kantinum.
Sent heim að dyrum eða sæktu þar sem þér hentar
Tveggja ára ábyrgð á raftækjum
Ómerktar umbúðir afhentar samdægurs ef pantað er fyrir kl 12, á höfuðborgarsvæðinu
í stað hefðbundinna 14 daga
Vinsamlegast skráðu þig inn til að setja vöruna í óskalistan