Karfan er tóm
Sjálfsfróun er eitthvað sem flestir stunda enn samt sem áður virðist það en vera hálfgert feimnismál. Hægt og rólega er umræðan þó að vera opnari sem betur fer því sjálfsfróun er góð fyrir heilsuna og sjálfsmyndina þína. Sjálfsfróun er að veita sjálfum sér kynferðislegan unað eða fullnægingu með því að snerta kynfæri sín. Hún þarf ekki endilega að enda á því að þú fáir fullnægingu, hún er líka að leika sér að því að snerta sig smá og njóta án þess að klára.
Ástæðan fyrir því að fólk stundar sjálfsfróun eru margar og mismunandi. Sumir gera það af því að það lætur þeim líða vel aðrir til þess að losa um spennu eða skoða sjálfan sig. Það er eðlilegt að stunda sjálfsfróun hvort sem þú ert í sambandi eða ekki. Fólk stundar sjálfsfróun mismikið, sumir daglega aðrir vikulega eða jafnvel aldrei og það er fullkomlega eðlilegt að fólk stundi það mismikið.
Það er tilvalið að notasjálfsfróun til þess að kynnast sínum líkama og finna hvað þér finnstgott. Hefur þú skoðað kynfærin þín almennilega? Það er gott að skoða þau,snerta og læra inn á þau með því að leika sér að þeim. Auðveldara er fyrir stráka að kanna sín kynfæri helduren stelpur, en þær geta dregið fram spegilinn og skoðað. Það getur veriðáhugavert að skoða hvað gerist þegar þú örvar kynfærin þín. Karlar fá standpínuog segja má að konur fái það líka því þegar snípurinn er örvaður verður hannstinnur og þrútin. Þeir sem stunda sjálfsfróun þekkja betur hvað þeim finnstgott og geta því leiðbeint leikfélaganum í rétta átt. Það að þekkja líkama sinngetur auðveldað konum að fá fullnægingu þegar þær stunda kynlíf með makanum þvíþær vita þá hvernig og hvað þarf að gera til þess að fullnægja sér.
Að stunda sjálfsfróun er ekki bara til þess að kynnast sér eða láta sér líða vel því hún er líka mjög heilsusamleg. Þegar þú fullnægir þér losast um hormón sem kallast endorfín en þau veita þér vellíðunartilfinningu og slá á líkamlegan sársauka. Einnig losast um streitu og kynferðislega spennu þegar þú færð fullnægingu. Sjálfsfróun hjálpar þér einnig að sofa betur og getur bætt sjálfsmyndina. Þannig að um að gera fara leika sér með sjálfum sér, tækjunum þínum eða leikfélaga til þess að bæta heilsuna.